þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Stefáni Vagni Stefánssyni fyrir ræðuna. Þar kom m.a. fram að Framsóknarflokkurinn væri með tvenn skilaboð. Önnur þeirra eru sú staðhæfing að hagsmunum Íslands væri áfram betur borgið utan ESB. Ég veit að íslenskur landbúnaður er hugleikinn Framsóknarflokknum eins og okkur í Samfylkingunni. Við höfum átt fjölmörg samtöl við bændur og í þeim samtölum hefur komið fram að þeir starfa undir regluverki EES, sem er náttúrlega að miklu leyti það sama og bændur í ESB eru að starfa undir, en þeir hafa ekki aðgang að sömu styrktarsjóðum. Í samtölum mínum við bændur þá má alveg heyra að það er ákveðin spenna fyrir því að vita hvað kæmi út úr þessum samningaviðræðum. Ég velti fyrir mér: Hvernig getur hv. þingmaður fullyrt um þetta með tilliti til landbúnaðar þegar þetta liggur í raun ekki fyrir? Ég velti upp spurningunni: Hvað vitið þið sem við hin vitum ekki um þetta mál?