157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[19:18]
Horfa

Stefán Vagn Stefánsson (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir þetta andsvar. Hvernig getur Framsóknarflokkurinn sagt þetta, er spurt. Þetta er okkar mat eftir að hafa farið yfir kosti þess og galla að vera innan Evrópusambandsins eða utan þess. Það er okkar mat að hagsmunum Íslands sé betur borgið utan sambandsins. Við erum auðlindadrifið hagkerfi. Við erum eyja. Á Íslandi eru lífskjör með því besta sem gerist í heiminum, ef ekki best, ásamt Sviss og Noregi. Hvað eiga þau ríki sameiginlegt? Já, ég get bara staðið hér og sagt: Þetta er okkar mat. Það kann alveg að vera að hv. þingmaður sé með annað mat og leggi annan skilning í hagsmuni Íslands en sá sem hér stendur og það er bara allt í lagi. En mat mitt og mat Framsóknarflokksins er alveg skýrt og hefur verið mjög lengi.