þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég treysti mér ekki til að leggja mat á þetta núna en ég vil bara endilega fá fram fullkláraðan samning sem lá vissulega ekki til grundvallar þegar það var tekið af þjóðinni að fá þessi svör fram hér á sínum tíma. Það eru hér skýr markmið þar sem segir t.d. að tryggja eigi öflugan íslenskan landbúnað á grundvelli fæðuöryggis og matvælaöryggis. Hér hafa hæstv. ráðherrar líka talað um að það komi ekki til greina að fórna okkar auðlindum í þessum samningaviðræðum. Ég fagna því að Framsóknarflokkurinn ætli ekki að koma í veg fyrir að þessi þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram en ég held að við hljótum að þurfa að kalla fram skýrari svör um nákvæmlega hvað það mun þýða fyrir hagsmuni Íslands ef þessi samningur mun einhvern tímann birtast okkur.