þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir síðara andsvarið. Það var rætt hér um landbúnað, fæðuöryggi. Það er rétt hjá hv. þingmanni að við í Framsóknarflokknum höfum haft mikinn áhuga á íslenskum bændum, á velferð íslenskra bænda og framleiðslu þeirra. Við höfum staðið vörð og munum standa vörð um hagsmuni íslensks landbúnaðar og það er ein af ástæðunum fyrir því að við teljum þessum hagsmunum betur borgið utan Evrópusambandsins. Við erum ekki hluti af innri markaðnum að því leyti að ég hef verulegar áhyggjur af inngöngu í Evrópusambandið og þeim tollfrjálsa innflutningi á matvælum sem með því myndi skapast; að það yrði verulega erfitt fyrir íslenskan landbúnað að keppa við innflutninginn. Það myndi þýða verulegt högg fyrir íslenskan landbúnað og íslenskar byggðir; landbúnaðurinn er kjarni í allri byggðastefnu landsins. Þessari spurningu er því auðsvarað, virðulegur forseti: Ég held að öllum sem hafa fylgst með íslenskum landbúnaði sé ljóst að sú samkeppnisstaða sem myndi skapast við inngöngu í Evrópusambandið gæti riðið honum að fullu.