þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Herra forseti. Í mínu fyrra andsvari ætla ég að beina spurningu til hv. þm. Stefáns Vagns Stefánssonar og þakka honum fyrir ræðuna og fyrir að skýra fyrir okkur ýmislegt. Ég var svo upptekinn í ræðunni hans við að velta fyrir mér Evrópusambandinu og þessu öllu að ég bara náði ekki því sem hann sagði þegar kom að því sem við erum þó raunverulega að ræða hér í dag, þ.e. þjóðaratkvæðagreiðslunni sjálfri; hvort Framsóknarflokkurinn ætlaði að greiða atkvæði með því að við færum í þessa þjóðaratkvæðagreiðslu eða ekki. Það er kannski mín fyrsta spurning til þingmannsins. Ég þakka forseta fyrir ríflegan ræðutíma en ég ætla að virða þá mínútu sem mér er gefin.