þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Þá verðum við hv. þingmaður bara að vera ósammála um það hversu góð leið þetta er. Ég tel að við séum að fara rétta leið í þessu, við séum að vinna þetta mál mjög vel og að það muni vinnast vel í umræðunni næstu daga í þinginu og síðan í hv. utanríkismálanefnd.
Í seinna andsvarinu langar mig að beina spurningu til þingmannsins sem snýr að löggæslu- og öryggismálum. Við höfum rætt hér landbúnað og fisk og annað en mig langaði svolítið að heyra hvort Framsóknarflokkurinn eða a.m.k. þingmaðurinn hefði skoðað hvað fælist í því, ef við gengjum í Evrópusambandið, hversu mikil aukning í löggæslu- og öryggismálum yrði. Þá er ég ekki að tala um Schengen-samstarfið sem leiðir til þess að við t.d. getum haft fastafulltrúa hjá Europol heldur almennt og alfarið í þessu samstarfi, sem er ekki hluti af EES-samningnum.