157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[19:29]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Við ræðum hér þingsályktunartillögu um að spyrja íslensku þjóðina, færa henni valdið til að segja sinn hug um það hvort Ísland eigi að hefja að nýju aðildarviðræður við Evrópusambandið og draga línu í sandinn í þessu ótrúlega mikilvæga máli, máli sem hefur elt okkur sem samfélag marga áratugi. Það verður hins vegar ekki sagt nógu oft: Þetta er ekki atkvæðagreiðsla um skilyrðislausan stuðning við aðild. Þetta er atkvæðagreiðsla um það hvort við eigum að halda áfram með aðildarviðræður við Evrópusambandið og kanna möguleika þess að ná fram samningi sem þjóðin fær síðan að samþykkja eða hafna. Þarna viljum við treysta þjóðinni, við treystum henni til að kynna sér málið og ekki bara út frá því sem við segjum hér, með fullri virðingu fyrir okkur. Við treystum henni líka til að ræða það sín á milli, við treystum henni til að taka ákvörðun um næstu skref. Við vitum hins vegar líka að stjórnvöld þurfa að vera traustsins verð og þessi ríkisstjórn ætlar sér að standa undir því og við sem þingmeirihlutanum tilheyrum.

Forseti. Alþjóðakerfið sem við búum við í dag hefur tekið mjög miklum breytingum á skömmum tíma og þá verða minni og meðalstór ríki að spyrja sig: Með hverjum stöndum við? Hvar stöndum við? Hverjir eru líklegir til að standa með okkur þegar á dynur? Ísland er þegar stoltur þátttakandi á EES-svæðinu og í Schengen og um það ríkja ekki pólitískar deilur. Fyrir það er ég mjög þakklát. Við höfum tekið þátt í innri markaðnum í hartnær 30 ár og aðdragandinn var svo sannarlega ekki án áskorana fyrir íslenska stjórnmálaumræðu, fyrir þennan þingsal og fyrir íslenskt samfélag á sínum tíma. Hér í þessari pontu var því afdráttarlaust haldið fram að hér værum við að framselja fullveldið á silfurfati til erlendra valdhafa, EES-samningurinn myndi kosta okkur fullveldið og að málið og samningurinn myndi sundra þjóðinni með þeim hætti að hún bæri þess ekki bætur. En hvað gerðist? Það varð úr milliríkjaviðskiptasamningur sem er og verður sá mikilvægasti og farsælasti sem Ísland hefur samþykkt á lýðveldistímanum. Ég ætla ekki að þræta um það. Hér varð til farsælla og samkeppnishæfara samfélag. Í stuttu máli gengu þessar dómsdagsspár ekki eftir. Það þýðir ekki að umræðan hafi verið ómálefnaleg en gífuryrðin héldu ekki.

Við skuldum þjóðinni það að ræða þetta mál af hreinskilni og kanna stöðuna en á sama tíma, og ég vil leggja mikla áherslu á það, þá þurfum við að fara mjög raunsæ inn í þessa umræðu. Þar ætla ég ekki að láta mitt eftir liggja. Hér verða áskoranir, það verða tækifæri en það verða til staðar áskoranir því að við skulum segja bara eins og er: Ef það væri ekkert um að semja þá værum við komin með samningsdrög í tölvupósti.

Forseti. Þetta er opið vegna þess að við getum farið inn í þessar viðræður með tvennum hætti; á hnjánum eða hnarreist. Við gerum það fyrir íslenska þjóð að fara hnarreist inn í þær og gera ýtrustu kröfur fyrir íslenska hagsmuni. Við gerum það sem sjálfstæð, frjáls, fullvalda þjóð með skýra hagsmuni og kröfur sem varða okkar auðlindir og orkuöryggi, þar sem staðinn verður vörður um íslensk séreinkenni þar sem þau eru til staðar, þá gerum við það rétt eins og aðrar þjóðir hafa gert og náð árangri þar um.

Það er ástæða fyrir því að það er til sérstök fræðigrein innan Evrópufræðanna, innan Evrópuréttarins, sem heitir stækkunarfræði. Sérlausnirnar eru af ýmsum gerðum. Ég hlakka til að eiga samtal við ykkur um þær síðar en ekki hér í kvöld því í dag ætlum við að ræða hvers vegna það skiptir máli að leyfa þjóðinni að ákveða hvert hún vill stefna með þetta mál, sem leiðir okkur að því að jafnvel þótt niðurstaðan verði sú að halda áfram innan EES-samningsins, fara ekki í aðildarviðræður við Evrópusambandið, þá yrði það mark í sandinn og ef við myndum fella fyrirliggjandi aðildarsamning við Evrópusambandið þá værum við samt ríkari. Þá stæðum við samt uppi reynslunni ríkari og þessar viðræður yrðu til þess fallnar að Ísland myndi stóreflast í sinni hagsmunagæslu gagnvart Evrópska efnahagssvæðinu og verja það sem við eigum hérna saman. Stundum þurfum við að gera það með kjafti og klóm því við vitum að við þurfum og verðum að kortleggja betur hvar við þurfum að beita okkur af meiri þunga í Brussel, hvernig sem þessi þjóðaratkvæðagreiðsla fer.

Forseti. Hér í þingsal eru vissulega raddir sem vilja tala fyrir því að þagga hugsanlega Evrópusambandsaðild niður, segja að þetta mál sé bara einkamál okkar stjórnmálafólksins, það sé fólk hér inni í þessum sal sem vilji ekki sjá okkur fara í þetta verkefni. En ef eitthvað er þá skapar það vantraust í stjórnmálunum þegar stórar ákvarðanir eru teknar án aðkomu þjóðarinnar. Hér segjum við það aftur: Þjóð, við treystum ykkur. Ef einhverjir hérna inni vilja tala hátt um það hversu mikið þessi ríkisstjórn hér ætlar að kljúfa þjóðina, sundra henni, þá vil ég bara kalla fólk til ábyrgðar með það. Megi þeir sem tala fyrir þessu spyrja sig, áður en þeir halda þessu fram, hvað þeir sjálfir og hvað þau sjálf ætli að gera til þess að takmarka þá sundrung því það eru fá mál sem henta betur til þjóðaratkvæðis en akkúrat svona mál.

Við treystum þjóðinni en á sama tíma þá verður þessi þjóð að geta treyst því að þessi ríkisstjórn haldi áfram vel á málunum. Við erum svo sannarlega meðvituð um ábyrgð okkar í efnahagsmálum, efnahagsstefnu sem hefur árum saman skilað miklu minni hagvexti á mann en við getum sætt okkur við. Það er verið að taka til í ríkisrekstri, það er verið að loka skattaglufum, við erum að reyna og við erum að byggja upp raunverulegan hagvöxt til framtíðar. Lánshæfismat ríkissjóðs hefur vissulega lækkað, vextir hafa lækkað og markmiðið er skýrt: Hvað sem öðru líður ætlum við að reka ríkissjóð án halla á næsta ári. Saman ætlum við að móta ábyrga atvinnustefnu sem mun efla atvinnugreinar sem auka raunverulega verðmætasköpun hér á landi. Þetta heitir stöðugleiki og við stöndum auðvitað áfram vörð um velferðina en við getum gert þetta á sama tíma og við horfum fram á við og erum framsýn í utanríkismálum. Við getum gert tvennt í einu og eigum að gera það og ef af viðræðum verður megum við ekki slá af kröfum okkar í efnahagsmálum. Fólk verður að geta treyst því.

Forseti. Ísland stendur í dag í mun sterkari stöðu en árið 2009 til að ganga til samningaviðræðna við Evrópusambandið — ef þjóðin veitir okkur umboð til þess. Við erum sterkt samfélag og það er miklu fleira sem sameinar okkur en sundrar og við erum með skýra sjálfsmynd. Við erum frjáls og fullvalda þjóð og við höfum ekkert sem stjórnmálamenn að óttast í opnu og heiðarlegu samtali við þjóðina. Spurningin er einföld: Treystum við þessari þjóð, treystum við henni til að taka þátt í þessari ákvörðun? Það geri ég svo sannarlega.

Mig langar að ljúka máli mínu hér með því að tala um óttann. Við getum farið inn í þessar viðræður hnarreist og gert ýtrustu kröfur fyrir Ísland og komið sterkari út úr þeim og passað áfram upp á það sem við eigum hérna saman eða við getum farið inn í þessar umræður og viðræður, aðallega umræðurnar, full af ótta. Ég biðla til þingheims að láta óttann ekki stjórna sér, ótta við það að mögulega getum við hér náð fram góðum samningi sem þjóðin gæti mögulega hugsanlega fellt sig við. Ég vil biðja þingheim um að gera það upp við sig hvort þau ætli að virða þá niðurstöðu sem fæst í fyrirhugaðri atkvæðagreiðslu og ef þau ætla ekki að gera það að vera þá skýr með það. Það er ekki réttlætanlegt að óttast góðan samning. Það er ekki réttlætanlegt að fara á svig við vilja almennings. Ég hlakka til umræðunnar hér í þingsal og á komandi vikum og mánuðum. (Forseti hringir.) Hún verður flókin en ég ætla að koma því á framfæri að ég hlakka mest til að fá fram niðurstöðu í þessu máli hvert sem þetta ferðalag mun leiða okkur.