þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Guðlaugi Þór Þórðarsyni fyrir góðar spurningar. Í fyrsta lagi þá er rétt að koma þessu á framfæri: Já, það er tími til kominn, í þeim aðstæðum sem við erum í núna, að eiga ærlegt samtal við þjóðina um það hvar við stöndum. Það þýðir ekki að við séum að skipta okkur í einhver lið, við ætlum áfram að vera öflugur bandamaður. Ég ætla hins vegar að undirstrika það að út frá mínum bæjardyrum séð, sama hvað líður framtíð Íslands sem hugsanlegs Evrópusambandsríkis eða EES-ríkis, getum við verið bandamaður þvert á Atlantsála. Ég bið hv. þingmenn um að lesa það ekki úr orðum mínum að ég sé að skipta okkur í einhver lið. Það eru fjölmörg Evrópusambandsríki sem heyra til dyggra bandamanna annarra landa en innan Evrópusambandsins. Með völdin frá Íslandi til Brussel, ég fæ að koma að því í seinna andsvari.