157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[19:42]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég held að hv. þingmaður sé að segja að við vitum auðvitað hvar við stöndum og ég vona að hv. ríkisstjórn sé ekki með efasemdir um það. Við þurfum ekki að ganga í Evrópusambandið til þess að vita hvar við stöndum. Það þarf ekkert ríki að ganga í Evrópusambandið, Noregur þarf þess ekki, til að vita hvar það stendur. En, virðulegur forseti, þið komist ekki upp með þetta. Þið komist ekki upp með það að segja að bækur eins og þessar, sem eru kenndar í háskólunum, bækur um það hvað felst í að vera í Evrópusambandinu, bæklingar og upplýsingagjöf frá Evrópusambandinu, séu bara einhver þvæla og að um samningaviðræður sé að ræða. Ætlar hv. þingmaður að halda því til streitu að allt það sem Evrópusambandið segir um Evrópusambandið — Evrópusambandið er búið að vera til í tugi ára — og allt það sem er kennt í háskólanum sé þvæla? Ég hef lært þetta í háskólanum og ef ég hefði svarað eins og stjórnarliðar gera þá hefði ég einfaldlega fallið. (Forseti hringir.) En aftur: Hv. þingmaður og stjórnarliðar þurfa að færa rök fyrir því af hverju það er gott fyrir Ísland að færa völd frá Íslandi yfir til Brussel.