157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[19:44]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinni spurninguna eða ítrekun á hinni fyrri. Ef hv. þingmaður hefði hins vegar hlustað á það sem ég sagði, botninn í því sem ég fór með varðandi okkar bandamenn, hefði hann kannski glöggvað sig aðeins betur á því hvert ég var að fara. Já, með hverjum stöndum við og hverjir standa með okkur? Ég er ekkert svo viss um að það geti allir endilega svarað því upp á punkt og prik alltaf. Þannig virka alþjóðakerfi þessa heims. Gæti hugsanleg Evrópusambandsaðild haft einhvers konar þýðingu fyrir Ísland í geópólitísku samhengi? Já, ég er þeirrar skoðunar. Svo er það bara annarra að hafa sína skoðun á því vegna þess að þetta fólk mun koma til með að hafa jafn mikil völd og ég og hv. þingmaður í þessari þjóðaratkvæðagreiðslu. Varðandi það hvers vegna það er gott að færa völd frá Íslandi til Brussel vil ég gera hv. þingmanni grein fyrir því, og ég veit að hann veit það mætavel, að nú þegar höfum við framselt hluta af innanríkisvaldi okkar til Brussel og við gerum það með opin augun í gegnum EES-samninginn, þar sem við meðtökum gerðir innri markaðarins (Forseti hringir.) án þess að eiga nokkurn einasta kjörna fulltrúa á þeim vettvangi þar sem raunverulegar ákvarðanir eru teknar. Þetta er staðreynd. Við getum þrætt um þetta, (Forseti hringir.) en þetta er staðreynd og þetta gera menn með opin augun. Ég kalla eftir opinskárri og einlægri umræðu um það í hverju valdaframsal felst raunverulega. — Afsakið, forseti.

(Forseti (BergÓ): Forseti minnir þingmenn á að ræðutíminn er ein mínúta í báðum umferðum þegar fjórir þingmenn hafa óskað eftir andsvari.)