157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[19:46]
Horfa

Jóhann Friðrik Friðriksson (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég ætla að byrja á því að segja já, ég hef alltaf verið mjög forvitinn um Evrópusambandið og því meira sem ég kynni mér það, því betur er ég upplýstur og get tekið afstöðu til þess. Nú liggur fyrir að við erum að fara að kjósa hér í ágúst að öllu óbreyttu um það hvort við ætlum að halda áfram aðildarviðræðum. Þá skil ég málið þannig að þetta séu raunverulega aðlögunarviðræður sem hefjast um leið og við erum búin að segja já, ef það verður niðurstaðan. Ef ég skil Evrópusambandið sjálft rétt þá þýðir það að við þurfum að fara að aðlaga okkur að Evrópusambandinu, það sé ferlið. Jú, það er rétt, ég skil það a.m.k. þannig, að það sé svona sirka 5% af því sem liggur undir í regluverkinu sem hægt er að semja um. (Gripið fram í: … ekki alveg.) Mögulega, 95%, það verður ekki hægt að hagga því. Mig langaði að spyrja hv. þm. Dagbjörtu Hákonardóttur: Er þetta réttur skilningur hjá mér? (Forseti hringir.) Erum við raunverulega að segja við þjóðina: Viljið þið, já eða nei, hefja aðlögunarviðræður að Evrópusambandinu?