þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir málefnalega spurningu sem mér finnst eiga erindi við almenning á þessum tímapunkti vegna þess að þessu er gjarnan haldið fram í umræðunni allri, að verði farið í þennan leiðangur þá hefjist einhvers konar óafturkræft aðlögunarástand sem er okkur ekki að skaðlausu sem EES-þjóð. Það hefjist í snatri aðlögun að sameiginlega landbúnaðarkerfinu, sameiginlegu sjávarútvegsstefnunni, við byrjum bara í ERMII og hér verða allt í einu allt aðrar aðstæður en voru áður en við hófum þetta ferðalag. Ég dáist að vissu þeirra sem kunna að halda þessu fram, að þetta verði bara þannig. En nei, við getum séð til þess að það verði ekki farið í óafturkræfanlegar aðgerðir á þeim köflum sem falla nú þegar utan EES-samningsins. Því er til að svara, hv. þingmaður, að nú þegar hefur Ísland (Forseti hringir.) aðlagað sig og gert það bara með býsna góðum árangri í 30 ár að EES-samningnum, (Forseti hringir.) það er liður í því. En þetta eru viðræður og þær munu ekki út frá mínum bæjardyrum séð binda hendur Íslands umfram það sem nú er.