157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[19:50]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sína seinni fyrirspurn og aftur góða nálgun á umræðuna. Því er hins vegar til að svara varðandi það sem hann kom inn á í fyrra andsvari að EFTA-þjóð hefur ekki gengið inn í Evrópusambandið síðan 1995. Það er ekkert ómálefnalegt að halda því fram og ég geri það bara með nokkurri vissu — án þess að ég sé eitthvað tilbúin til að segja nei, þetta er ekki svona eða jú, þetta er svona — að það er mjög margt sem bendir til þess að það sé raunhæft fyrir okkur að fara út og gera kröfur. En hverjar eru þessar kröfur? Þar verð ég hins vegar kannski að valda hv. þingmanni talsverðum vonbrigðum, ég er ekki sú sem get lagt upp með það hvað eru ófrávíkjanlegar kröfur okkar t.d. í auðlindamálum. Núna snýst þetta bara um eitt í mínum huga; hvort við treystum þjóðinni og treystum þessum stjórnvöldum til að fara og gera ýtrustu kröfur vegna þess að við erum ekki alveg komin þangað í umræðunni. Það væri æskilegt að vera búin að stilla upp kröfulista, mögulega. Væri það endilega betra fyrir okkar samningsstöðu til lengri tíma litið? En ég segi bara við hagsmunafélögin, sem segja: Ekkert um okkur án okkar — ég kalla eftir þeirra aðkomu í þessari umræðu.