þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Fyrra andsvar mitt snýr ekki að þessum þætti en ég ætla að biðla til hv. þingmanns að vera ekki að taka undir málflutning sumra um að EES-samstarfið feli í sér valdaframsal til Brussel. Hv. þingmaður veit betur og á ekki að vera apa upp þennan ömurlega málflutning.
En að andsvari mínu: Hv. þingmaður kom inn á það að hún treysti þjóðinni til að taka ákvörðun. Því langaði mig til að spyrja hv. þingmann, sem er nefndarmaður í utanríkismálanefnd, hvort hún telji ekki sömuleiðis mikilvægt að almenningur sé vel upplýstur í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar og að það fari fram vönduð málsmeðferð hér í þinginu og sérstaklega innan utanríkismálanefndar. Mun hún ekki beita sér fyrir þessum atriðum? Hvað finnst henni þá um dagsetningu fyrirhugaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu í þessu tilliti? Er hún hentug til að tekin verði upplýst ákvörðun og að við getum miðlað upplýsingum til almennings svo hann geti þá tekið í kjölfarið upplýsta ákvörðun?