157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[19:53]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég ætla að gera mitt besta til að virða ræðutímann hér. Númer eitt: Ég mun ekki taka undir fullyrðingar þess efnis að í EES-samningnum felist ekki neins konar valdframsal af hálfu Íslands til annarra aðila en þessa þings. Það er hins vegar ekki þar með sagt að hér sé um að ræða fullveldisframsal og á því er geigvænlegur munur. Við getum tekið þá umræðu kannski betur síðar.

Ég vil að sjálfsögðu leggja mitt af mörkum til að umræðan sé upplýst og vönduð. Ég bara hvet alla þá sem vilja gefa sig að því að hugsa með sér og líta inn á við: Hvernig get ég stillt umræðuna af, haft hana málefnalega, farið inn á efnisatriði og verið ekki með innstæðulausar fullyrðingar um að svona sé þetta nú bara og verið algjörlega fullviss í minni sök? Þetta eru samningaviðræður. Við sem hérna inni erum vitum, þrátt fyrir allt, ekki allt. Með dagsetninguna: Já, ég sé kosti við það að fara inn í næsta þingvetur og vera búin að leggja þetta mál frá okkur varðandi þessa þjóðaratkvæðagreiðslu. Þannig að já, ég er ánægð með hana.