þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Hvernig getum við hv. þingmenn stuðlað að þessu? Við gætum m.a. gert það inn í utanríkismálanefnd og ég hefði óskað þess að hv. þingmaður hefði verið afdráttarlausari með það að hún myndi stuðla að vandaðri og heiðarlegri málsmeðferð í nefndinni. Í ræðu sinni kom hv. þingmaður sömuleiðis inn á orðræðu hér, að því er mér skildist, í þinginu í dag um framsal fullveldis Íslands á silfurfati og var hann þá að vísa í ræðu væntanlega einhvers annars. Mig langaði til að spyrja hv. þingmann: Á hvernig fati vill Samfylkingin framselja fullveldi Íslands, ef ekki á silfurfati? Hér vísa ég í fyrirvaralausa yfirlýsingu Samfylkingarinnar á heimasíðu Samfylkingarinnar þar sem segir, með leyfi forseta: „Samfylkingin vill stefna að fullri aðild Íslands að Evrópusambandinu.“