157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[19:55]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf) (andsvar):

Forseti. Við getum ekki farið með það endalaust inn í þennan þingsal hvernig málsmeðferð á einstaka nefndarfundum fer fram nákvæmlega. En ég þakka bara fyrir brýninguna um það að við séum samtaka í því að leiða til lykta sem flest ágreiningsmál í sem mestri sátt innan veggja nefndarinnar og já, ég tek bara þá brýningu til mín. Hins vegar get ég ekki fallist á að ég hafi brugðið út af brautinni þar í morgun, svo það sé sagt. Varðandi það hvort það sé óeðlilegt að jafnaðarmannaflokkurinn Samfylkingin hafi það sem stefnumál sitt að vilja stefna að fullri aðild og ætli þar með að segja að fara inn í Evrópusambandið sama hvað, svona er þetta ekki. Ekki frekar en að við séum tilbúin til þess að vinna á einhverjum vinnustað sama hvað eða vera í einhverju sambandi sama hvað. Þetta er ekki svona. (Forseti hringir.) Við ætlum að framselja vald okkar til þjóðarinnar. Það er það eina rétta í stöðunni. Svo eru aðrir sem eru því ósammála.