þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina en ég held að það sé mikið ofmat að halda því fram að það verði einhver skortur á málefnalegri umræðu um þessi mál þótt þau fari ekki fram hér í þessum þingsal. Með fullri virðingu fyrir þessum ágæta sal þá finnst mér það dálítið hvimleitt stef að halda að það eina sem nái inn á dagskrárvaldið sé það sem gerist hér í þessari pontu. Þegar Samfylkingin var í stjórnarandstöðu var það ekki einhver markviss stefna en við gerðum bara sem mest af því að fara út fyrir þennan sal og tala við fólkið. Vitið þið hvað? Það bara virkaði ágætlega. Með það hins vegar hvort þetta sé að gerast í lok sumars þá verða börnin mín byrjuð í skóla og vinnustaðir verða komnir á fulla ferð. Það er ekki hásumar. Þetta er ekki 14. júlí eins og þegar við lukum hér þinginu í sumar. Það var nú aldeilis mikil umræða og við létum ekki sumarsólina trufla okkur í því að eiga hér í misinnihaldsríkum umræðum um annað mál. En, nei, vitið það, í lok ágúst er fínn tími til að vakna (Forseti hringir.) og gera upp hug sinn.