157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[20:00]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið og verð að segja að ég er algjörlega ósammála þessu mati hv. þingmanns og mati ríkisstjórnarinnar og stjórnarliða á þessari dagsetningu. Mér finnst með öllu óeðlilegt að ákveða að hafa hana 29. ágúst í lok sumars einmitt þannig að þingið sé ekki að störfum. En ég þakka hv. þingmanni fyrir kennsluna og fyrir að koma pólitískum áróðri og umræðu á laggirnar. Ég þekki það svo sem ágætlega og auðvitað eiga þingmenn og aðrir umræðu um þessi mál en engu að síður hefði mér fundist mikilvægt að hér myndu heyrast skýr skilaboð frá þjóðkjörnum fulltrúum um afstöðu þeirra til þessa risastóra máls. Það er annað og margt annað sem ég mun koma inn á í ræðu minni hér síðar, annars vegar dagsetningin og hins vegar það að þessi þingsályktunartillaga er ansi rýr, greinargerðin. Þar er til að mynda ekkert um kostnað. Mér finnst það sæta furðu því að það er auðvitað þannig að hér eiga stjórnarmál, hvort sem það eru þingsályktunartillögur eða lagafrumvörp, almennt að hafa einhvers konar kostnaðarmat. Hyggst hv. þingmaður beita sér fyrir því í nefndinni að það verði farið yfir það hvað (Forseti hringir.) þingsályktunartillagan sem slík kostar? Nú er það auðvitað einhver beinn kostnaður bara við þjóðaratkvæðagreiðsluna en það er ekki bara það því að mér finnst eðlilegt að þeir sem fara inn í þessa atkvæðagreiðslu átti sig líka á hvað felst í því í kjölfarið. Ef ég segi já við þessu, hvað mun það kosta?