þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir mjög góða spurningu. Því er til að svara: Já. Stóra spurningin í þessu máli er auðvitað: Hvaða orku og hvaða þreki verður varið í þessar viðræður og hvað megum við gera ráð fyrir miklum kostnaði sem af þeim kann að hljótast? Þar er hægt að horfa til þess hvernig málum hefur verið háttað erlendis. Við gerum okkur hins vegar líka grein fyrir því að stjórnsýslan hér er lítil. Mér finnst þetta bara málefnalegar vangaveltur og ég vænti þess að það verði ekki hörgull á því að fólk leiti svara við því þannig að fólk geti gert þetta upp við sig með þær staðreyndir á bak við eyrað og beinlínis fyrir framan sig. Það mun ég a.m.k. gera. Ég get alveg lofað ykkur því.