þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Nú þekkir hv. þingmaður Evrópusambandið mjög vel og alþjóðamál ágætlega og hefur nú verið eini stjórnarliðinn sem fram til þessa hefur ekki tekið þátt í þessum blekkingarleik að við séum að setjast og semja við Evrópusambandið um þá væntanlega eitthvað nýtt Evrópusamband. Ég vil spyrja hv. þingmann: Er hann kominn á blekkingarvagninn? Ætlar hv. þingmaður að segja við þing og þjóð að við séum að setjast niður með Evrópusambandinu eins og hér væru tveir aðilar sem væru bara að fara að búa til eitthvað nýtt Evrópusamband? Hv. þingmaður veit og hefur sagt og skrifað að það að sækja um aðild að Evrópusambandinu felst í því er að þú ert aðili að Evrópusambandinu og þú undirgengst eðlilega lög og reglur Evrópusambandsins. Hefur hv. þingmaður skipt um skoðun? Ef hv. þingmaður hefur skipt um skoðun vil ég fá að vita hvenær Evrópusambandið breyttist. Hv. þingmaður veit að ég veit að hann veit.
Virðulegi forseti.(Forseti hringir.) Ég vil bara fá svör við þessu. Er hv. þingmaður að halda því fram að þetta upplegg ríkisstjórnarinnar (Forseti hringir.) og stjórnarliða, að við séum að setjast hér og semja við Evrópusambandið, eins og það væru tveir jafngildir aðilar (Forseti hringir.) — virðulegi forseti, ég fékk tvær mínútur og vil halda mig við þær.
(Forseti (BHar): Nei, ræðutíminn er eingöngu ein mínúta þegar fjórir fara í andsvör. Forseti viðurkennir að hún var örlítið sein að lækka það niður í eina mínútu.)
Mér fannst virðulegur forseti ekkert seinn.
(Forseti (BHar): En ræðutíma er lokið.)
Hvað sem öðru líður þá vil ég skýr svör frá hv. þingmanni (Forseti hringir.) og ég mun taka eftir hverju einasta orði í hans svari.
(Forseti (BHar): Forseti ítrekar það að þegar fjórir hv. þingmenn hafa óskað eftir því að veita andsvar er ræðutíminn aðeins ein mínúta í báðum umferðum. Það þarf að handstilla klukkuna svo það kann að birtast ræðumönnum aðeins of seint.)