157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[20:13]
Horfa

Pawel Bartoszek (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið og loforð um að hann muni fylgjast með svari mínu af athygli. Ég verð að segja, og ég get heldur ekki haldið fram einhverjum blekkingum, að mér finnst dálítið breyttur tónn í þeim sem tala fyrir hönd Evrópusambandsins. Það er þannig. Ég kann alveg að lesa mér til gagns og þegar ég heyri leiðtoga eins stærsta ESB-ríkis tala um „elasticity“ eða sveigjanleika, að Evrópusambandið þurfi að vera sveigjanlegra, þá finnst mér það aðeins annar tónn en við höfum heyrt. Yfirlýsingar Mörtu Kors eru á sama hátt, að engir tveir aðildarsamningar séu eins. Ef ég kann að lesa mér til gagns, þá les ég líka ákveðið svigrúm til samtals og að mínu mati meira svigrúm en við höfum heyrt á fyrri stigum, þ.e. þegar við höfum rætt við Evrópusambandið áður. Þannig að já, ég hef orðið var við breyttan tón og ég get ekki hylmt yfir þá tilfinningu mína.