157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[20:15]
Horfa

Guðlaugur Þór Þórðarson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hreinskiptið svar en við vitum það báðir, hv. þingmenn hér, að tónninn breytir engu. Það er ekki af því að þetta sé fólk sem er með horn og hala sem segir: Heyrðu, það er bara skrifað út í samþykktum Evrópusambandsins að þið þurfið að innleiða öll lög og reglugerðir, við getum gefið ykkur einhverja aðlögun í einhver ár en þá þurfum við að breyta samþykktunum. Eins og með norræna landbúnaðinn, þú kemst ekki hjá því að vera partur af sameiginlegu landbúnaðarstefnunni. Þú kemst ekki hjá því að vera partur af sameiginlegu sjávarútvegsstefnunni, ekki nema menn fari í ríkjaráðstefnu og breyti bara Evrópusambandinu. Hv. þingmaður verður auðvitað að ákveða hvernig hann hagar sínu máli. Fram til þessa hefur hv. þingmaður verið einn af sárafáum einstaklingum sem voru ESB-sinnar á Íslandi — og ég ber alveg virðingu fyrir skoðun hv. þingmanns um að vilja að Ísland gangi í ESB — en fram til þessa, og á síðustu árum, hefur hann nærri því verið einn. Það var ekki þannig. (Forseti hringir.) Hér áður fyrr útskýrðu íslenskir ESB-sinnar af hverju þeir vildu að Ísland gengi í ESB. En ég vona að hv. þingmaður (Forseti hringir.) fari ekki sömu leið og stjórnarliðar því það mun koma í bakið á þeim. (Forseti hringir.) Menn geta ekki breytt staðreyndum með því að tala allir einni röddu fyrir blekkingum.