157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[20:16]
Horfa

Pawel Bartoszek (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni síðara andsvar. Ég vil kannski ekki skilja eftir þá tilfinningu að ég vilji ganga í Evrópusambandið til þess að breyta öllu því sem þar er. Langstærsti hluti af því sem er í Evrópusambandinu, bæði það sem við tökum inn í gegnum EES-samninginn og annað sem við myndum fá í kjölfarið, t.d. eins og evruna — það er engin ástæða fyrir okkur til að biðja um neinar sérlausnir eða tímabundnar aðlaganir eða hvaðeina í því, það er bara mjög margt þar inni mjög gott. Það er auðvitað hefð fyrir ákveðnum sérlausnum. Það hafa verið nefndar hér sérlausnir í norrænum landbúnaði sem voru með þeim hætti að Evrópusambandið breytti því hvernig regluverkið í heild sinni er. Mér finnst það alveg ásættanlegt niðurstaða. Þá hafa verið gerðar bókanir við aðildarsamninga, eins og á Möltu, sem hafa haldið öll þessi ár. Eins og ég segi, ég held því ekki fram að allt Evrópusambandið muni breytast í einu og öllu til að liðka fyrir okkur en mér finnst annar tónn í þeim sem tala fyrir hönd Evrópusambandsins.