157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[20:18]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Hv. þingmaður nefndi í ræðu sinni tilvísun ýmissa þingmanna sem hafa vísað í handbók Evrópusambandsins um aðildarviðræður eða um stækkun Evrópusambandsins. Hv. þingmaður vísaði til þessa sem 15, 16 ára gamals bæklings. Hann er væntanlega að vísa í handbókina frá 2011. Þar kemur skýrt fram að aðildarríki þurfi að uppfylla þau skilyrði sem Evrópusambandið setur, það kemur alveg skýrt fram. Hvað er það sem hv. þingmaður telur nákvæmlega að hafi breyst frá þessum tíma? Ég heyri að hann nefnir að hann skynji annan tón í samtölum manna á millum. Er það eitthvað sem hönd á festir? Hefur verið gerð einhver sérstök breyting á þessari handbók, einhver bókun við hana sem breytir þessari skýru afstöðu sem hefur komið frá Evrópusambandinu um skilyrði þess að ganga inn í Evrópusambandið, fortakslaust skilyrði (Forseti hringir.) sem er það að aðildarríki lúti öllum skilyrðum aðildarsamningsins?