þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir hennar andsvar. Ég veit ekki hvert lögformlegt gildi handbókin hefur, hún er auðvitað bara ákveðin afstaða Evrópusambandsins, ákveðið samningsmarkmið og ég get mjög vel skilið þá samningsafstöðu Evrópusambandsins, að það vilji ekki gefa fordæmi fyrir allt of miklum breytingum í hvert skipti sem aðildarríki gengur inn. En það hefur þó vissulega átt sér stað — af því að menn segja að það hafi ekkert breyst og ekki verið gerðar aðlaganir undanfarin ár, en það hefur ekki EFTA-ríki, ekki Vestur-Evrópuríki sem er svona vel tengt, gengið í Evrópusambandið síðan 1995 þegar Austurríki, Svíþjóð og Finnland gengu inn og þá voru gerðar nokkrar breytingar á regluverki Evrópusambandsins til að aðlaga sig að þörfum þeirra. Þannig að ég held að við getum sótt í það fordæmi vegna þess að við erum auðvitað í aðeins annarri stöðu en Mið- og Austur-Evrópuríkin (Forseti hringir.) sem gengu inn á árunum 2004–2007 eftir hrun kommúnismans.