þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Ég þykist greina hér ákveðinn misskilning hjá hv. þingmanni sem ég greini hjá öðrum hv. þingmönnum líka um þessar Evrópureglur almennt eða Evrópurétt. Það er sitthvað, aðlaganir að reglum eða aðlaganir að tilskipunum eða aðlaganir að innleiðingu á reglum inn í aðildarríkin og síðan undanþága eða skilyrði í aðildarsamningi. Það getur verið gott og vel að fá einhverja aðlögun á einhverri reglugerð eða undanþágu jafnvel, aðlögun eins og það er kallað, á tilteknum tilskipunum og reglugerðum. Þeim verður síðan breytt í tímans rás. Það sem um ræðir væntanlega af hálfu Íslands er fortakslaust skilyrði í aðildarsamningi, undanþága frá reglum Evrópusambandsins í aðildarsamningi sem ekki yrði breytt. Ekki aðlaganir að reglum Evrópusambandsins. Það er allt annað og miklu léttvægara.
En svo langar mig að spyrja hv. þingmann sem fer fyrir utanríkismálanefnd hvort hann muni ekki krefjast þess fortakslaust að allar áætlanir um kostnað við aðildarviðræður verði lagðar fyrir nefndina og lagðar fyrir þingið. (Forseti hringir.) Það mætti byrja á því að mínu mati að kalla eftir öllum upplýsingum um allan kostnað, beinan og óbeinan,(Forseti hringir.) sem féll til á árunum 2009–2013, við aðlögunarviðræðurnar þá. (Forseti hringir.) Mun hv. þingmaður beita sér fyrir því í hv. utanríkismálanefnd að þessar tölur liggi fyrir?
(Forseti (BHar): Forseti minnir á tímamörkin.)