þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegur forseti. Já, það er rétt, lagalega eru þetta ólík hugtök. Ég er ekkert endilega að segja að við eigum að sækjast eftir varanlegri undanþágu frá einhverjum kafla, fá t.d. varanlega undanþágu frá evrunni eins og Bretland var með á sínum tíma, það væri ekki í samræmi við okkar hagsmuni að falast eftir því að eitthvert heilt regluverk myndi ekki falla undir þetta eins og t.d. um evru. En þegar kemur að sérlausnum þá er það rétt að sérlausnir eru hluti af heildarregluverki Evrópusambandsins. Sérlausn Möltu í sjávarútvegi var hluti af aðildarsamningi þeirra og var að finna í viðaukanum.
Hvað varðar spurningu um kostnað þá finnst mér algjörlega sjálfsagt mál að tekinn sé saman sá kostnaður sem féll til vegna síðustu aðildarviðræðna. Mig minnir að þetta hafi hlaupið á nokkur hundruð milljónum og helmingur af því hafi verið þýðingarkostnaður.