157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[20:24]
Horfa

Pawel Bartoszek (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka kærlega fyrir andsvarið. Mér finnst tímasetningin bara henta ágætlega gagnvart almenningi. Almenningur er ekki allur í fríi í júní, júlí og ágúst. Ég veit að ég þarf ekkert að segja fólki það en það er auðvitað ekkert þannig. Flestir skólar í dag byrja svona um miðjan eða jafnvel snemma í ágúst þannig að þegar þangað er komið þá má búast við að flestir sem hafi farið eitthvert í frí til útlanda séu komnir heim, skólastarf sé farið af stað og flestir vinnustaðir komnir á fullt. Það má því búast við að þetta sé bara prýðilegur tími hvað það varðar.

Varðandi vandaða málsmeðferð þá, já, að sjálfsögðu styð ég vandaða málsmeðferð og hef alltaf gert í öllum málum sem ég hef tekið að mér, hvort sem ég hef stýrt þeim sem formaður eða framsögumaður. Auðvitað er partur af vandaðri málsmeðferð hins vegar líka það að þingið eða nefndin nái að afgreiða málið á tilsettum tíma þannig að það er eðlilegt að setja sér einhverja tímaáætlun hvað þetta varðar, fylgja henni svo vel eftir en skapa rými fyrir allar mögulegar umsagnir og gestakomur innan þess tíma.