þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Honum þykir dagsetningin góð og heldur sig við það. Það er skrýtið að við skulum ekki að jafnaði ganga til kosninga á þessum tíma. Það eru allt of fáir búnir að fatta hvað þetta er frábær dagsetning, það er alveg ótrúlegt.
Mig langaði hins vegar til að vera á sömu slóðum og hv. þingmenn hér á undan mér varðandi vangaveltur hv. þingmanns um orð ráðamanna á stangli í Evrópu og Evrópusambandinu og kannski einhverjar breytingar á Evrópusambandinu. Ég er svolítið á sömu slóðum og hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson. Ég er búin að þekkja hv. þingmann lengi og hef heyrt hann tala fyrir Evrópusambandinu alveg frá því að ég kynntist honum og það eru komin yfir 20 ár síðan við sátum saman í stjórn SUS. Þá var hv. þingmaður að tala fyrir inngöngu í Evrópusambandið og hefur gert það alla tíð, a.m.k. meðan ég hef þekkt hann.
Ég var að velta fyrir mér: Af hverju er hv. þingmaður að tína til þessi huggandi orð ráðamanna í ESB á stangli? Er það til að koma til móts við einhverjar efasemdaraddir af því að væntanlega hefur afstaða hv. þingmanns ekkert breyst? Er það ekki rétt hjá mér eða hvað? Hvílir afstaða hv. þingmanns til inngöngu Íslands í Evrópusambandið (Forseti hringir.) þungt á orðum aðila eins og forsætisráðherra Póllands, um breytingar á Evrópusambandinu? (Forseti hringir.) Gerir hann það að einhvers konar skilyrði? Í hvaða formi verður það? Eða er hv. þingmaður að gelta áfram (Forseti hringir.) og ævinlega sem stuðningsmaður inngöngu Íslands í Evrópusambandið?