157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[20:27]
Horfa

Pawel Bartoszek (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka kærlega fyrir spurningarnar og get sagt það af nokkurri hreinskilni að ef yfirlýsingar ráðamanna Evrópusambandsins hefðu áfram verið afdráttarlausar á þann hátt að það væri um ekkert að semja og við þyrftum bara að samþykkja allar reglur myndi afstaða mín til Evrópusambandsins líklegast samt vera sú sama. Ég hef alltaf stutt Evrópusambandið eins og það er en ég get ekki að því gert að taka eftir ákveðinni breytingu þegar kemur að þeim sem tala fyrir hönd Evrópusambandsins. Ég nefni þá Mörtu Kos stækkunarstjóra og ég nefni forsætisráðherra Póllands sem fulltrúa leiðtogaráðsins. Ég hef líka orðið var við breytingu þegar ég tala við aðra evrópska þingmenn á þessum tíu árum. Ég skynja bara þá breytingu. Fólk er meira tilbúið til að sýna ákveðinn sveigjanleika en það gerði einu sinni og ég get ekki annað gert en að deila þeirri upplifun, bæði með þingheimi og almenningi.