þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Pawel Bartoszek fyrir sína ræðu. Hann er líklegast dýpsti þingmaður Viðreisnar í þessu máli og gaman að fá að eiga orðastað við hann hér. Mig langar samt að leiðrétta hann aðeins í upphafi, þar sem hv. þingmaður talaði um skólasókn: Grunnskólabörn mæta ekki í skóla fyrr en seint í ágúst.
Það sem mig langar hins vegar að spyrja hv. þingmann um eru þessar samningaviðræður og þessi tónn sem hv. þingmaður hefur heyrt. Ég ætla að vísa hér í orð Mörtu Kos sem hv. þingmaður hefur sjálfur vísað hér í nokkrum sinnum. Í samtali við norska ríkisútvarpið, NRK, segir hún þegar hún er spurð út í ferlið og hvort hægt væri að fá varanlegar undanþágur, t.d. í sjávarútvegi eða landbúnaðarmálum, með leyfi forseta: „Þetta snýst að miklu leyti um það að aðlaga löggjöf umsóknarríkisins að löggjöf Evrópusambandsins. Almennt verða ný ríki að samþykkja allar reglurnar. En stundum er hægt að fá aðlögunartímabil.“ Engar varanlegar undanþágur. (Forseti hringir.) Þetta er bein tilvísun í núverandi stækkunarstjóra ESB. Um hvað er að semja ef engar varanlegar (Forseti hringir.) undanþágur eru í boði?