157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[20:30]
Horfa

Pawel Bartoszek (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka fyrir þetta og ætla að kynna mér þessa tilvitnun frá Mörtu Kos. Þarna er í rauninni verið að vitna í samningsmarkmið gagnaðila okkar í þessu, sem er Evrópusambandið. Það getur auðvitað verið kostur að semja um tímabundnar aðlaganir og það getur verið kostur að semja um sérlausnir líka. Við höfum nefnt hérna nokkrar sérlausnir, hvort sem það er í norðurskautslandbúnaði í Svíþjóð og Finnlandi eða á öðrum stöðum. Maltverjar fengu inn í sinn aðildarsamning breytingu á sjávarútvegskerfinu. Það myndi ekkert endilega vera fullkomið fyrir okkur og ekkert endilega forskrift að því sem við myndum velja. Engu að síður er þarna ákveðið rými fyrir ákveðinn sveigjanleika, þannig að þessi yfirlýsing er á einn veg en ég myndi segja að ýmsar aðrar yfirlýsingar sem ég hef heyrt nýlega séu eitthvað á þann veg að það sé alveg svigrúm til að halda áfram þessu samtali.