þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svar við andsvari mínu. Það er ágætt að heyra að hann er sammála því að það séu engar varanlegar undanþágur í boði. Það eru engar varanlegar undanþágur. Það skiptir öllu máli. Hér talar hv. þingmaður um eitthvað nýlegt. Ég held að það hafi verið í síðustu viku að Ríkisútvarpið tók viðtal við Heather Grabbe sem var áður aðalráðgjafi Olli Rehns, stækkunarstjóra ESB. Það kom skýrt fram í máli frú Grabbe, svo að ég vísi, með leyfi forseta, beint í orð hennar: „Þannig að það er svigrúm til að semja um aðlögunartíma en það eru engar varanlegar undanþágur í boði.“ Á ensku: „No ops out.“ Þetta kom fram í viðtali í annaðhvort síðustu viku eða þar síðustu viku; glænýtt. Það eru engar varanlegar undanþágur í boði þannig að hér er verið að tala um að aðlaga bæði landbúnaðinn og sjávarútveginn, orkuna og allt að regluverki ESB. Það er ekkert um að semja og þess vegna er þetta ákveðið leikrit sem er í gangi.