157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[20:32]
Horfa

Pawel Bartoszek (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Þegar kemur að „opt out“ er oftast átt við það að ríki sé undanþegið einhverjum kafla í heild sinni. Þannig voru Bretar t.d. undanþegnir evrunni, Danir reyndar líka. Danir voru undanþegnir nokkrum köflum í Evrópusambandinu, meira að segja varnarmálum og síðan samstarfi í dómsmálum. Þeir féllu reyndar nýlega frá barnamálasamstarfinu þannig að þeir eru ekki lengur með undanþágu eða „opt out“ í því og það er þá yfirlýsing Evrópusambandsins um að fleiri slíkum undanþágum verði ekki komið við. Ég er ekkert endilega sannfærður um að það eigi að vera sérstakt samningsmarkmið okkar að vera varanlega undanþegin einhverjum heilum kafla í heild sinni. Á því kunna að vera einhverjar ólíkar skoðanir en ég held að innan marka sérlausna og þeirra lausna sé vel hægt að finna lausnir sem t.d. ríki eins og við, sem hefur miklu þyngri og stærri sjávarútveg sem hlutfall af vergri landsframleiðslu en nokkurt annað ESB-ríki, gæti vel unað við.