157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[20:34]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Í byrjun þessarar umræðu langar mig að nefna örstutt það sem kom fram í umræðu hér áðan. Fyrir stoltan Íslending og þjóðkjörinn þingmann var það vont að lesa fyrst um fyrirhugaða dagsetningu atkvæðagreiðslunnar í erlendum ESB-miðlum. Ásýndin er sú að hæstv. utanríkisráðherra og stjórnarliðar hafi verið að gaspra um fyrirætlanir sínar í Brussel, kannski í einni af þessum átta ferðum sem hæstv. utanríkisráðherra fór í fyrra, en hafi ekki fyrir því að ráðfæra sig við þingið og við almenning með samráði sem skylt er að viðhafa. Þetta lýsir svo vel viðhorfi þessarar ríkisstjórnar til þjóðþingsins og til íslensks almennings. Hugurinn og hjartað alltaf í Brussel, bókstaflega auðvitað eins og ferðabókhald hæstv. ráðherra sýnir. x

En hér erum við og ræðum þjóðaratkvæðagreiðslu um ESB, atkvæðagreiðslu sem mun fara fram enda þingmeirihluti fyrir henni. Reyndar er ekki þingmeirihluti fyrir aðild að ESB og við skulum halda því til haga að engri heilvita ríkisstjórn hefur nokkru sinni dottið það í hug að sækja um aðild að ESB án þingmeirihluta á bak við sig. En jæja, Flokkur fólksins leggur ESB-flokkunum lið við að setja þetta mál á dagskrá, þrátt fyrir að þjóðin hafi hafnað ESB í síðustu alþingiskosningum og þrátt fyrir loforð m.a. hæstv. forsætisráðherra um að ESB færi ekki á dagskrá. Gott og vel. Þessir flokkar eiga það þá bara við sína kjósendur.

Og við hvaða aðstæður ræðum við núna ESB? Verkefnin eru sannarlega ærin innan lands og ríkisstjórnin hefur greinilega gefist upp á þeim; verðbólgu, háum vöxtum og atvinnuleysi. Ríkisstjórnin leitar hreinlega skjóls í deilum um ESB og treystir því að augu almennings fari þá af vangetu þeirra til að ráða við stjórn landsins. Svo ég vísi í orð hæstv. forsætisráðherra, með leyfi forseta:

„… forgangsmálið núna verður efnahagslegur stöðugleiki í formi aðgerða sem við getum ráðist í strax í dag, ekki í formi alþjóðlegs samstarfs. Húsnæðismálin, heilbrigðismál, samgöngur og önnur atvinnustefna. Þetta eru risamál. Þá meina ég það og ég ætla ekki að fara á bak orða minna.“

Svo mörg voru þau orð. En fyrst hæstv. forsætisráðherra vill frekar ræða ESB, skulum við ræða ESB. Byrjum á því að ræða fyrirkomulagið sem ríkisstjórnin leggur hér til við ESB-kosninguna. Sölulína ríkisstjórnarinnar er sú að nú eigi að kanna möguleikana. Umræðan um þá möguleika á þó að fara fram yfir sumarleyfistíma þings og þjóðar. Það er ástæða fyrir því að við göngum aldrei til kosninga á þessum tíma, á tíma þegar þjóðin er gjarnan með hugann við annað, reynir að nýta alltof stutta íslenska sumarið, á tíma þegar þingið er ekki að störfum og hv. þingmenn geta því ekki lagt almenningi lið við að afla nauðsynlegra upplýsinga vegna spurninga sem koma alveg örugglega upp þegar nær dregur.

Eins og fram hefur komið mun þessi atkvæðagreiðsla fara fram, um það er þingmeirihluti, en furðuleg tímasetning hennar hlýtur auðvitað að vekja athygli og umræðu hér í þinginu. Varla er það markmið í sjálfu sér að sem minnst umræða fari fram og að almenningur eigi ekki kost á því að kallað sé eftir upplýsingum og svörum ráðamanna?

Virðulegi forseti. Svo aftur sé vísað í orð hæstv. forsætisráðherra þá hefur hún auðvitað reynt að halda því fram að þessi atkvæðagreiðsla snúist ekkert um ESB, að fólk þurfi ekki allar upplýsingar um hvað það þýði að tilheyra ESB, fyrir þessa atkvæðagreiðslu. Hæstv. utanríkisráðherra var með sömu línur í framsögu sinni hér áðan. Einhverjir myndu nota orð hv. þm. Dagbjartar Hákonardóttur um að reynt sé að þagga umræðuna niður. Ég skil vel að ríkisstjórnin vilji ekki ræða hvað það þýði að tilheyra ESB. Ég skil það bara fullkomlega enda þeirrar skoðunar eins og svo margir Íslendingar að ESB aðild henti ekki Íslandi.

Ríkisstjórnin vill ræða öryggis- og varnarmál. Hún vill ræða breyttan veruleika á alþjóðavettvangi, óstöðugleika, stríð. Hún vill ræða verndarhyggju og aðra frasa í alþjóðastjórnmálum. Hún vill hræða þjóðina, ekki bara með svartagallsrausi um óstöðugleika og um aflsmun sem ráði úrslitum í heiminum, heldur líka með því að rifja upp harðræði sem ESB hefur nýlega beitt þjóðina; tolla á mikilvægan íslenskan iðnað, undir því yfirskyni að framkoman hefði verið öðruvísi við bandalagsríki, því skjólið í ESB sé svo gott, svo öruggt. En ríkisstjórnin vill ekki ræða hvað það þýðir að vera aðildarríki í Evrópusambandinu sem er þó auðvitað heila málið. Ég hlakka til að ræða ESB enda þekki ég vel til. Ég hefði þó heldur kosið að við eyddum dýrmætum tíma þingsins í að ræða hvernig við bregðumst við erfiðum efnahagsaðstæðum hér innan lands, aðstæðum sem eru greinilega farnar að vaxa ríkisstjórninni í augum.

Ég verð að valda ríkisstjórninni vonbrigðum því ég er hingað komin og við í stjórnarandstöðunni til að ræða Evrópusambandið. Og við hlökkum til og við treystum þjóðinni til að taka þátt í umræðum hvað það þýðir að ganga inn í ESB. En til þess að þessi atkvæðagreiðsla og niðurstaðan verði ekki fullkomlega merkingarlaus hlýtur þjóðin að fá að vita áður en hún er spurð hver skilyrði ríkisstjórnarinnar fyrir inngöngu eru. Til þess að þjóðaratkvæðagreiðsla sé það lýðræðislega tæki sem ætlunin er, þá þarf að spyrja réttra spurninga og þjóðin þarf að hafa allar nauðsynlegar upplýsingar. Þar eru skilyrði ríkisstjórnarinnar fyrir inngöngu í ESB algjört lykilatriði.  

Hér er nefnilega komin upp frekar ótrúleg staða. Það er ekki þingmeirihluti á Alþingi fyrir aðild að Evrópusambandinu, það voru niðurstöður síðustu alþingiskosninga. Hæstv. forsætisráðherra kemur síðan hér upp í dag og lýsir því yfir að hún treysti sér ekki til að segja hvað Evrópusambandið sé, hvað aðild að ESB feli í sér og þess vegna beiti hún sér fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu. Þetta finnst mér vera heldur veikburða tilraun ESB-sinna til að slá ryki í augu fólks. Ég hvet fólk til að fara á heimasíðu Samfylkingarinnar og lesa þar stefnumál hennar, m.a. um fulla aðild Íslands að Evrópusambandinu. Talað um það sem markmið, markmið sem þurfi að ná. Þetta samband, þessi aðild sem er svo mikil óvissa um er samt eitt helsta stefnumál Samfylkingarinnar og auðvitað aðalstefnumál Viðreisnar, sérstaklega eftir að jafnlaunavottunin var lögð til hliðar.

Virðulegi forseti. Ráðamenn sem hafa svo veikt umboð þjóðarinnar til að tala fyrir ESB-aðild, segjast jafnvel ekki vita hvað í henni felist, eru þeir sem þurfa að sannfæra þjóðina og, að mínu mati, á tíma þegar hægt er að kalla eftir nauðsynlegum upplýsingum fyrir hana. Og til þess að atkvæðagreiðslan og niðurstaðan sé ekki markleysa þarf að upplýsa um það hver skilyrði ríkisstjórnarinnar eru í viðræðunum sem hún óskar eftir umboði til að fara í. Við sjáum það á heimasíðum þeirra að Samfylking og Viðreisn vilja fara í ESB án tillits til þess hvort og hvað Evrópusambandið kann eða kann ekki að bjóða. Flokkur fólksins lætur sér það í léttu rúmi liggja enda fengið ýmislegt fyrir sinn snúð í skiptum fyrir stuðninginn.

Virðulegi forseti. Það er ekkert launungarmál hvað ESB er, það geta allir kynnt sér það á heimasíðu þess. Ég treysti þjóðinni fyllilega til þess. En ég geri samt athugasemdir þegar ríkisstjórnin reynir að blekkja þjóðina og talar um ESB eins og óskrifað blað. Spáið aðeins í þetta: Finnst okkur ekkert skrýtið að þeir sem mest tala um það að við þurfum að skoða möguleikana, kíkja í pakkann, eru flestir einarðir stuðningsmenn þess að við göngum í ESB? Hvernig má það vera? Hvernig kemur það eiginlega heim og saman? Að þykjast ekkert vita en hafa samt þá yfirlýstu stefnu að ganga í ESB? Fyrrum utanríkisráðherra Danmerkur stafaði það ofan í Íslendinga 2017, með leyfi forseta „Vitanlega er ESB ekki lokaður pakki. Þið vitið hvað þið væruð að fara út í.“ Fyrrum stækkunarmálastjóri ESB sagði við síðustu viðræður, með leyfi forseta: „Ef ég nota myndlíkingu þína þá eru spil Evrópusambandsins þegar á borðinu, fyrir allra augum.“ Á heimasíðu ESB segir einfaldlega, með leyfi forseta:

„Umsóknarríki verða að samþykkja regluverkið áður en þau geta gengið í Evrópusambandið og gera það að hluta af landslögum sínum. Upptaka og innleiðing regluverksins er grundvöllur viðræðnanna. […] Hversu hratt viðræðurnar ganga fyrir sig fer eftir því hversu fljótt hvert ríki kemur á umbótum og aðlagast regluverki sambandsins. […] Markmið viðræðnanna er að umsóknarríkið taki upp regluverkið í heild.“

Virðulegi forseti. Við Sjálfstæðismenn studdum og styðjum gæfurík spor í alþjóðasamstarfi; aðildina að NATO, varnarsamninginn við Bandaríkin, aðildina að EFTA og aðildina að EES. En við styðjum ekki inngöngu í Evrópusambandið og ekki skref í átt að aðild. Og ég er sammála hæstv. utanríkisráðherra þegar hún segir að þetta snúist um hvort við treystum þjóðinni. Við Sjálfstæðismenn nefnilega treystum þjóðinni. Við treystum þjóðinni og viljum þess vegna að hún ráði áfram sínum málum sjálf. Framselji ekki fullveldi sitt og ákvörðunarvald til Brussel. Við treystum þjóðinni. Ég hvet ríkisstjórnina til að láta af þessar vanmáttarkennd og dugleysi og treysta líka íslensku þjóðinni.