157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[20:44]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur fyrir prýðisgóða ræðu. Það er tvennt sem mig langar að koma inn á í fyrra andsvari. Annars vegar eru það tímasetningarnar sem hér eru undir. Þær minna mig dálítið — ef ég man rétt var hv. þingmaður varaborgarfulltrúi um sinn, er það ekki rétt munað? Hv. þingmaður hefur fengið smjörþefinn af því þegar verið var að reyna að koma sem gölnustu skipulagsbreytingunum í gegn í tengslum við Reykjavíkurflugvöll sem var iðulega gert í júní og júlí, hvað upphaf slíkra breytinga varðar. Sér hv. þingmaður einhver líkindi milli þess sem var ítrekað reynt hjá Reykjavíkurborg, þ.e. að láta lítið fara fyrir breytingum er sköðuðu og þrengdu að Reykjavíkurflugvelli? Mig minnir að hv. þingmaður hafi verið með fyrirspurn hér fyrir nokkru síðan í þinginu er varðar stærstu viðskiptamynt okkar. Það er mikið lagt upp úr því að Evrópusambandið sé stærsti (Forseti hringir.) viðskiptaaðili okkar. Hv. þingmaður leiðréttir mig ef þetta er misminni en (Forseti hringir.) komu ekki áhugaverðar upplýsingar fram í þessari fyrirspurn eða svari við henni forðum?