þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og takk fyrir þessi líkindi á upprifjun varðandi Reykjavíkurborg. Ég var nú að velta þessu fyrir mér í ræðu minni varðandi tímasetninguna, hvort það gæti mögulega verið markmið í sjálfu sér að það færi ekki fram eiginleg umræða hér og það væri ekkert þing að störfum þar sem þjóðkjörnir fulltrúar gætu gegnt mikilvægu hlutverki fyrir almenning við að kalla fram upplýsingar og svör við spurningum sem hljóta að vakna þegar nær dregur. Vegna líkingar hv. þingmanns þá rifjast auðvitað upp fyrir manni og blasir við að þetta eru auðvitað svolítið sömu leikendur sem hafa verið að stýra Reykjavíkurborg og stýra núna landsmálunum. Þetta er bara áhugaverð ábending.
Varðandi viðskiptagjaldmiðil, jú, það er rétt og hefur sömuleiðis komið fram í skýrslum, a.m.k. þeim sem hv. þm. Guðlaugur Þór Þórðarson lét útbúa þegar hann var utanríkisráðherra. Langmikilvægasti viðskiptagjaldmiðill Íslands, sem er auðvitað útflutningsþjóð eins og við þekkjum, er dollarinn. Þegar við erum að skoða meira að segja tölurnar varðandi evruna (Forseti hringir.) þá villir það svolítið um, og það hafa verið gerðir fyrirvarar við það, að þar er auðvitað Rotterdam inni sem er uppskipunarhöfn.