157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[20:47]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Í seinna andsvari langar mig að spyrja hv. þingmann, sem er fyrrverandi aðstoðarmaður utanríkisráðherra, út í þá vinnu sem fer af stað í því ljósi að þetta eru aðlögunarviðræður, ekki hefðbundnar samningaviðræður. Lýsingarnar sem komu hér úr, ég held að hv. þingmaður hafi verið að vísa til bæklings Evrópusambandsins hér undir lok ræðu sinnar, draga upp þá mynd að það fari strax af stað ferli sem lýtur að aðlögun, lagabreytingum, mögulegri breytingu á stofnunum eða nýjum stofnunum eftir atvikum. Er þetta myndin sem raunverulega teiknast upp verði niðurstaðan sú að í endaðan ágúst segi þjóðin já? Fer þá af stað eitthvert ferli sem snýr að aðlögun sem er í gangi þangað til seinni atkvæðagreiðslan, eins og þetta er lagt upp, fer fram?