þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur kærlega fyrir sína ágætu ræðu. Afstaða þingmannsins til inngöngu Íslands í Evrópusambandið hefur að mínu mati alltaf legið nokkuð skýrt fyrir, alveg eins og afstaða hv. þingmanns til jafnlaunavottunar. En það sem mér fannst ekki koma alveg skýrt fram í ræðu þingmannsins, og væri til í að spyrja bara beint út í það og fá svar við því, er: Hyggst hv. þingmaður greiða atkvæði með þessari þingsályktunartillögu og með því að þessi þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram, hyggst hann sitja hjá eða greiða atkvæði gegn henni? Mín afstaða og afstaða Viðreisnar hefur alltaf legið skýrt fyrir, þ.e. við munum virða niðurstöður þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Mun hv. þingmaður virða niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslunnar ef þjóðin samþykkir að halda áfram viðræðum við ESB?