157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[20:51]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það er merkilegt með hv. stjórnarþingmenn að þeir vilja aldrei ræða um daginn í dag, bara árið 2026, það mætti bara vera árið. Það er ýmist verið að ræða um það sem gerðist 1973 eða eitthvað, í einhverjum viðræðum hjá Danmörku, eða í einhverjum kosningum 2013 eða hvernig sem það er. Ég myndi bara vilja einbeita mér að þeirri umræðu sem er í gangi í dag. Ég heyri að hv. stjórnarþingmenn eru strax farnir að kvarta undan lengd umræðunnar. Hún er bara rétt að hefjast hér. Ég ætla bara að fá að hlusta á umræðurnar og taka virkan þátt í þeim, eins og ég hef verið að gera. Síðan á þetta mál eftir að koma inn í utanríkismálanefnd, hvar ég á sæti. Ég væri til í að heyra frá hv. þingmanni hvort hann muni ekki beita sér fyrir því og tala fyrir því að innan nefndarinnar fari fram vönduð og heiðarleg málsmeðferð, góð málsmeðferð, þannig að við getum komist að einhverri niðurstöðu áður en til þess kemur að við þurfum að ýta á takkann hér í þingsal.