þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Diljá Mist Einarsdóttur fyrir hennar svar við andsvari mínu. Jú, ég svara því játandi að ég styð það heils hugar að fram fari góð og málefnaleg vinna í utanríkismálanefnd og ég treysti þeim þingmönnum sem sitja þar og ekki síst hv. þm. Pawel Bartoszek sem gegnir þar formennsku. Ég er alveg til í að ræða árið 2026 og öll önnur ár. En ég verð að viðurkenna að mér hefur frekar þótt sem þingmenn Sjálfstæðisflokksins og annarra flokka í minni hlutanum hafi verið mjög uppteknir við að tala um það hvernig stækkunarstjóri Evrópusambandsins hér á árum áður, þegar Ísland sótti seinast um aðild, tjáði sig en líta ekki til þess hvernig núverandi stækkunarstjóri tjáir sig. Núverandi stækkunarstjóri sagði það beint út að í aðildarviðræðum sé tekið mið af raunveruleika hvers og eins aðildarríkis sem er nákvæmlega það sem ég vil láta á reyna, til að mynda í sjávarútveginum.