þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Það er gott að heyra hv. þingmann og virðulegan varaforseta tala fyrir vönduðum vinnubrögðum hér í þinginu. Maður er svolítið að safna í sarpinn loforðum hv. stjórnarþingmanna, að fenginni reynslu, þannig að það er gott að heyra það. Við eigum auðvitað öll að stefna að því að við séum ekki stimpilpúði fyrir framkvæmdarvaldið heldur rækjum hlutverk okkar og skyldur alvarlega hér í þinginu.
Varðandi það til hverra hefur verið vísað í umræðunum hér — ja, hv. þingmaður hefur kannski misst af prýðisgóðu andsvari hv. þm. Jóns Péturs Zimsen sem vísaði, ef mér skjátlast ekki, einmitt í núverandi stækkunarstjóra Evrópusambandsins. Það hefur því verið nóg af tilvísunum í allar áttir hér í þingsal. Ég ítreka bara það sem ég sagði áðan: Ég hlakka til umræðunnar og held áfram að safna í sarpinn fyrirheitum stjórnarliða um vandaða málsmeðferð hér í þinginu.