þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Frú forseti. Það rætast stundum óskir manns. Í salinn gekk hv. þm. Sigurður Helgi Pálmason um leið og ég kvartaði undan fjarveru fulltrúa Flokks fólksins og gerði tilraun til að leiðrétta málflutning hér í pontu með því að sýna mér annað svar, sem er alveg rétt en það var líka við annarri spurningu, svo því sé haldið til haga, hv. þingmaður. Spurningarnar eru einfaldlega ekki orðaðar eins og þess vegna voru svörin það ekki heldur.
En varðandi annað, nú er búið að vitna í Heather Grabbe, sérfræðing hjá Bruegel-hugveitunni í Brussel, sem staðfestir að það er eingöngu um frest aðlögunar að ræða en ekki varanlegar undanþágur. Það er líka búið að vitna í Mörtu Kos, stækkunarstjóra ESB, þrátt fyrir að öðru hafi verið haldið hér fram úti í sal, og þar er staðfest í viðtali við norska ríkissjónvarpið að það séu engar varanlegar undanþágur í boði. Hvað er það að mati hv. þm. Diljár Mistar Einarsdóttur sem hæstv. forsætisráðherra og hæstv. utanríkisráðherra vita sem þetta fólk veit ekki og hefur þetta þó sem aðalvinnu?