157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[21:01]
Horfa

Valdimar Breiðfjörð Birgisson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Það er ánægjulegt að við séum að taka þessa umræðu hér og nú og séum að byrja að krafla okkur niður í hana. Það eru svona kunnugleg stef sem hljómuðu hérna, að gera tortryggilegt að einhverjir séu að fara til Evrópu eða koma frá Evrópu. Svo er smjörklípan hér; það er aldrei rétti tíminn, það er ekki rétta dagsetningin, það er erfitt í ári núna eða það viðrar vel og því aldrei rétti tíminn til að fara í þessa þjóðaratkvæðagreiðslu sem fyrirhuguð er. Eða að það sé ekki þingmeirihluti fyrir aðild að Evrópusambandinu þótt það gæti kannski verið þjóðarvilji fyrir henni. Spurningin er því kannski sú að ef við vitum hvað er í pakkanum, ef við vitum nákvæmlega eins og sagt var, hvað Evrópusambandið er og að ekkert sé um að semja: Af hverju þá ekki (Forseti hringir.) að klára þessar samningaviðræður og sjá hvað er í pakkanum? Þá vitum við það. Þá er það afgreitt.