þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið sem ég er hreinlega ekki viss um að hafi átt algjörlega við mína ræðu. Ég kannaðist ekki við fjölmargt sem hv. þingmaður fór hér yfir. Varðandi það að það sé gert tortryggilegt að það sé farið í heimsóknir til Evrópulanda, ég bara kannast ekki við að hafa farið yfir það. Ég var sjálf aðstoðarmaður utanríkisráðherra og þekki það mætavel hversu mikilvægt það er að viðhafa góð samskipti við vini okkar í Evrópu. Hins vegar finnst mér ómaklega vegið að hæstv. forsætisráðherra. Ég geri ráð fyrir að hv. þingmaður hafi verið að vísa í orð hennar varðandi það hvort og hvenær verður tímabært að setja Evrópumálin á dagskrá. Að henni fjarstaddri finnst mér ómaklega vegið að henni hér. Varðandi það af hverju eigi ekki að fara í svokallaðar samningaviðræður eða aðlögunarviðræður við Evrópusambandið þá bendir hv. þingmaður á ákveðna mótsögn. Afstaða Sjálfstæðisflokksins er hreinlega skýr. Við vitum allt um það hvað Evrópusambandið er. Það er ekkert leyndarmál og ég fór yfir það (Forseti hringir.) í ræðu minni hér áðan og þess vegna viljum við ekki ganga þangað inn og ekki taka eitt einasta skref í þá átt, m.a. með því að fara í aðlögunarviðræður.