157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[21:04]
Horfa

Valdimar Breiðfjörð Birgisson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég var að vitna í þessar umræður sem hafa verið hér í dag og kannski ekki beint í þessa ræðu. Mér fannst hv. þingmaður ekki svara fyllilega spurningunni sem ég spurði. Ég spurði hvort ekki væri ástæða til að klára þessar viðræður, kíkja í pakkann og skoða hvað er í boði. Ef ekkert er í boði kemur það í ljós. Af hverju er þá svona erfitt að sætta sig við það? Hv. þingmaður talar um að vilja ekki leggja í þessa vegferð en mér finnst að þessari spurningu ætti að svara aðeins betur.