157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[21:05]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið sem mér heyrist þó að hafi ekki verið beint um mig. Mig langar að benda hv. þingmanni á að fyrirkomulagið er að farið sé í andsvar við hv. þingmann um efni ræðunnar. En gott og vel. Hv. þingmaður biður mig um að rökstyðja það af hverju ég vilji ekki fara í erindisleysuna sem aðlögunarviðræður við Evrópusambandið eru. Ég ætla að segja það að ég er sömu skoðunar og meiri hluti þingmanna hér á Alþingi. Ég er andvíg inngöngu Íslands í Evrópusambandið eins og meiri hluti Alþingis er. Það er ykkar sem setjið þetta mál á dagskrá og gerið þá kröfu að útskýra fyrir okkur og færa fyrir því rök og fyrir íslensku þjóðinni af hverju við eigum að leggja af stað í þessa erindisleysu. Það þýðir ekki að snúa þessu upp á okkur sem erum kýrskýr í okkar afstöðu og málflutningi. Útskýrið þið fyrir okkur og fyrir þjóðinni af hverju eigi að halda af stað í þessa vegferð.