157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[21:06]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M):

Virðulegur forseti. Hér er komið mál sem er því miður — eins og mörg mál sem þessi ríkisstjórn hefur lagt fram, þrátt fyrir að jafnvel séu það mál sem ríkisstjórnin sjálf metur mjög stór og mikilvæg mál — nokkuð vanbúið og ég furða mig á því að það skuli vera farið með þetta mál af hálfu hæstv. ríkisstjórnar eins og mannsmorð. Þetta mál er kynnt á blaðamannafundi á föstudaginn fyrir helgi, meira að segja áður en þingmönnum stjórnarflokkanna var kynnt málið, áður en málið var afgreitt út úr þingflokkum ríkisstjórnarflokkanna og þá svo sannarlega áður en öðrum þingmönnum var kynnt þetta mál. Þetta var kynnt á blaðamannafundi á föstudaginn án þess að það hafi farið fram samráð, málið hafi verið kynnt í samráðsgátt og hv. þingmenn hér, a.m.k. þingmenn stjórnarandstöðunnar, fá þetta mál hér kynnt eða framlagt á þinginu nokkrum klukkutímum eftir að það er kynnt á blaðamannafundi. Við þetta verður auðvitað að gera sérstakar athugasemdir.

Undir liðnum fundarstjórn forseta í dag fór fram nokkuð ítarleg umræða um þessa þætti og ég tel rétt að árétta þau mótmæli þingmanna við þessum skorti á formlegheitum í málinu. Ekki bara var brotið gegn þingskapalögum með því að hunsa samráð, að leggja málið ekki fyrir í samráðsgátt til að koma að athugasemdum þeirra utan þings sem hafa áhuga á þessu máli heldur braut ríkisstjórnin líka gegn starfsreglum ríkisstjórnarinnar, starfsreglum sem ríkisstjórnin sjálf starfar eftir og á að starfa eftir, reglum sem settar voru 2018 og hafa ekki verið felldar úr gildi. Það er með ítarlegum hætti áréttað að þingsályktunartillögur, meðal annarra mála, eigi að senda í samráðsgátt og eigi líka að bera undir önnur ráðuneyti en þau ráðuneyti sem viðkomandi ráðherra fer með ef málið er þannig vaxið. Þetta mál er svo sannarlega þannig vaxið að þetta varðar öll ráðuneyti í Stjórnarráði Íslands og þetta mál hefur að mér vitandi ekki verið sent til umsagnar í neitt ráðuneyti enda eru engin ummæli um það í greinargerðinni. En hver er ástæðan fyrir því að það átti að gera það? Jú, það er m.a. til þess að hægt hefði verið að meta áhrifin af þessu þingmáli, t.d. kostnað af málinu, nái það fram að ganga, og ýmsa aðra þætti. Að því leyti er þetta mál algerlega vanbúið og þingmenn settir í mjög furðulega stöðu að ræða hér um hvað gerist í rauninni eftir þessa þjóðaratkvæðagreiðslu, nái þetta mál fram að ganga. Verði það samþykkt hér á þinginu fer fram einhver þjóðaratkvæðagreiðsla um viðræður um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

Það er grundvallaratriði frá mínum bæjardyrum séð að þessi þjóðaratkvæðagreiðsla verði ekki haldin fyrr en búið er að leggja fyrir þingið, í ítarlegu máli, samningsmarkmið og kostnaðarmat á aðildarviðræðum. Ég er ekki að tala um kostnaðinn við þjóðaratkvæðagreiðslu, hann liggur fyrir, svona sirka hálfur til einn milljarður en kostnaðurinn eftir það, verði það samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslu að hefja aðildarviðræður við Evrópusambandið — þá þurfa menn að geta greitt um það atkvæði, tekið afstöðu til þess hvort eigi að gera það, m.a. með hliðsjón af þeim kostnaði sem af þeim viðræðum mun hljótast því þeim peningum verður ekki varið í annað á meðan. Með kostnaði er ég að vísa til beins kostnaðar sem bara er augljós, kostnaðar við að afla sérfræðiálita, kostnaðar starfsmanna í ráðuneytunum og ýmiss annars kostnaðar en líka óbeins kostnaðar sem felst í því að starfsfólk í ráðuneytum verður flutt úr sínum föstu verkefnum yfir í þetta verkefni sem er aðildarviðræður við Evrópusambandið. Nú tala ég bara af reynslu í þessum málum því við höfum gert þetta áður, við höfum átt í aðildarviðræðum við Evrópusambandið og það er bara gaman að rifja aðeins upp kostnaðinn á þeim tíma eða a.m.k. áætlaðan kostnað af því að menn hafa ekki gert nein reikningsskil á þeim kostnaði sem hlaust af þeim viðræðum sem stóðu yfir í nokkur ár. En það liggur fyrir t.d. minnisblað frá fjármálaráðuneytinu sem var nú ekki óvinveitt þeirri ríkisstjórn sem fór þá með þessar aðildarviðræður. Fjármálaráðuneytið gerði verulegar athugasemdir við kostnaðarmat utanríkisráðuneytisins á þeim tíma við aðildarviðræðurnar. Þá lá fyrir að þetta var svona tæplega milljarður sem utanríkisráðuneytið mat á þeim tíma, árið 2009, 1 milljarður þá, að þessar viðræður myndu kosta það, og tiltók þar starfsmannakostnað, ferðakostnað og aðkeypta sérfræðiþjónustu. Það er ekki ofsögum sagt að fjármálaráðuneytið hafi blásið á þessar áætlanir og lýst þessari áætlun sem mjög grófri og með miklum skekkjumörkum, fyrir utan það að það vantaði auðvitað þennan óbeina kostnað sem blasti við að menn voru færðir úr mikilvægum verkefnum í öllum ráðuneytum til að sinna þessum aðildarviðræðum, til þess að sinna þessu bjölluati sem menn ákváðu að viðhafa með langdregnum hætti í þrjú ár í tíð vinstri ríkisstjórnarinnar.

Ég legg mikla áherslu á það að hv. utanríkismálanefnd hefji strax vinnu við það að kalla fram reikningsskil eftir þessar aðildarviðræður árið 2009, ítarlega frá öllum ráðuneytum, og kalli um leið eftir áætlun allra ráðuneyta um kostnað við þessar aðildarviðræður þannig að hægt sé að leggja mat á það og þannig að almenningur sé alveg upplýstur um það hvaða fórnir verði færðar í þessu bjölluati hinu síðara sem hér er stefnt á að fari fram á næstu misserum. Því það er auðvitað einhver fórnarkostnaður sem felst í því.

Mig langar á þessum stutta tíma sem ég hef að nefna líka aðeins tímasetninguna sem þessi þingsályktunartillaga gerir ráð fyrir, 29. ágúst. Þetta er sumarfrí og þetta er auðvitað knappur tími fyrir þingið til að ræða þessi mál. Ég velti því fyrir mér, það er ómögulegt að segja hvað hentar betur en það má alveg hafa uppi efasemdir um þessa dagsetningu, ekki af því hún er 29. ágúst heldur af því að þingið er ekki komið saman þá. Nú fara í hönd í sumar miklar umræður. Grasrótarsamtök verða stofnuð og almenningur mun taka þátt í umræðu um þessi mál og það verða lögð fram mikil gögn og fræðimenn munu tjá sig hægri vinstri um þetta mál fyrir þessa þjóðaratkvæðagreiðslu og það er ágætt að það gerist auðvitað hérna utan þingsins. En ég velti fyrir mér hvort það sé eðlilegt að þingið fái ekki tækifæri til þess að ræða hér í þessum sal þau gögn sem þá verða lögð fram og þá umræðu sem þá mun hafa átt sér stað áður en þessi þjóðaratkvæðagreiðsla fer fram. Mér finnst ekkert hugað að þessu og þetta er ekkert rætt og þessi dagsetning er engan veginn rökstudd í þessari þingsályktunartillögu, eitt af mörgu sem er auðvitað einkennilegt og orkar tvímælis í þessari þjóðaratkvæðagreiðslu. Hér eru hins vegar svo mörg atriði, vegna þess að þessi þingsályktunartillaga er stutt og er ekki ítarleg en hún kallar á þeim mun fleiri spurningar sem þarf að svara og þingmenn, a.m.k. ég, hefðu áhuga á að reifa hér miklu frekar en ég hef ekki tök á hér, sé ég, á þessum stutta tíma og óska eftir að forseti setji mig aftur á mælendaskrá. (Forseti hringir.) Það er alveg viðbúið að síðari umræða geti tekið langan tíma miðað við þetta form sem þetta mál er fellt í af hálfu ríkisstjórnarinnar og ég velti fyrir mér hvort það hefði ekki verið nær að leggja þetta mál fram sem lagafrumvarp.