157. löggjafarþing — 80. fundur,  9. mars 2026.

þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu.

516. mál
[21:17]
Horfa

Ingvar Þóroddsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Sigríði Á. Andersen fyrir sína ræðu. Ég held að ég láti það vera að bregðast sérstaklega við alls konar tali um formsatriði eins og það hvort einhver blaðamannafundur hafi verið haldinn fyrir eða eftir að málið var sent til þingflokka og sömuleiðis ásakanir um að ríkisstjórnin hafi brotið þingskapalög, sem ég er bara alls ekki sammála. En ég vil bregðast við ýmsu sem kom fram í ræðu hv. þingmanns eins og varðandi kostnaðinn við aðildarviðræðurnar. Ég get tekið heils hugar undir með hv. þingmanni að ég held að þetta séu upplýsingar sem eiga að liggja fyrir þegar þjóðin gengur að kjörkössunum og tekur um þetta ákvörðun og tekur inn í reikninginn þegar verið er að vega og meta heildarmyndina. Aftur á móti sé ég ekki af hverju það ætti að vera eitthvert skilyrði fyrir því að Alþingi afgreiði þessa þingsályktunartillögu eins og hv. þingmaður vildi meina. Ég tek hins vegar undir að þetta eru upplýsingar sem ættu að koma fram. Ég er ekki sammála hv. þingmanni varðandi tímasetninguna og væri kannski frekar til í að heyra af hverju hv. þingmanni finnst svona mikilvægt að þingið komi saman þegar þessi kosningabarátta á sér stað. Við erum einmitt að fara að fjalla um þessa þingsályktunartillögu og fela þjóðinni að taka ákvörðun, þ.e. að hún sé í rauninni tekin fyrir utan þennan þingsal. Ég sé því ekki af hverju þingið á að vera einhver sérstakur þátttakandi í þessari kosningabaráttu eftir að þingsályktunartillagan hefur verið afgreidd héðan frá Alþingi. Það var það sem ég vildi koma inn á í mínu fyrra andsvari.